©Jón Kjartan Ingólfsson. Afritun náðsamlega afþökkuð.

19 febrúar 2006

Júró


Nú þegar júrósvisjón er búið í bili ætla ég að segja nokkur lauflétt orð.

Í fyrsta lagi - þá langar mig rosalega að vita hverjir voru í dómnefndinni sem valdi þessi 24 lög í undankeppnina. Það voru þarna nokkur lög sem voru langt fyrir neðan það að vera bara "ekki góð". Ég hef heyrt nokkur lög sem ekki náðu inn og eru talsvert betri en megnið af því sem var í þessari keppni. Mér er ofarlega í huga lag með hljómsv eitinni Hraun! sem ég heyrði demó af hjá einum meðlima - eitt mest grípandi lag sem ég hef heyrt. En það komst ekki í keppnina - nei, en swing-rapp lagið hans Bassa komst áfram og lagið sem hann Sigurjón Brink söng annars svo ári vel, helvíti vont lag. Nú, lagið sem Geir Ólafs söng og Friðrik Ómar samdi - það var agalegt. Friðrik er frábær söngvari - en hreint ekki góður lagahöfundur. Nú konan sem ég ekki man hvað heitir (ill tunga kallaði í mín eyru "ungfrú tanngarð") - býr í USA og flutti eigið lag. Það var helvíti vont.

Í annan stað (© Jón B. Hannibalsson) - hví er þetta gert svona stór og dýrt? Sjónvarpið heldur þessa keppni annað slagið og hendir í hana fáránlegu magni af peningum og þess á milli halda þeir enga keppni vegna þess að það er svo dýrt. Smá hugmynd hérna: hvernig væri að halda keppnina án þess að vera með allan þennan íburð? Ríkissjónvarpið hefur löngum klikkað á þessu - eytt allt of miklum pening í smekklausar umbúðir og fyrir vikið vart haft efni á innihaldinu. Mér er minnistætt gott dæmi. Á skjá einum var eitt sinn þáttur sem hét Björn og félagar. Björn Jörundur Friðbjörnsson (hann var vel að merkja ekki fyrsti né eini stjórnandi þáttarins - bara sá besti) ásamt hljómsveitinni Buff. Skemmtilega afslappaður og bráðskemmtilegur þáttur. Á sama tíma var Steinunn Ólína með samskonar spjallþátt á ríkisjónvarpinu, með hljómsveit Gunna Þórðar. Sá þáttur var ekki beint skemmtilegur. Sviðsmyndin hjá Birni og félögum hefur trúlega kostað svona fimmþúsundkall, en sú hjá Steinunni hefur líklega verið nær millu - einni og hálfri.

Lagið sem lak: Jú, Kristján Hreinsmögur hefur rétt fyrir sér. Reglur eiga að gilda jafnt fyrir alla og það á að vera á ábyrgð höfunda að gæta þess að lögin þeirra fari ekki í opinbera birtingu. Það hefði átt að dæma Þorvald Bjarna og co úr keppni. En þetta er ekki eins og mannsmorð eða eitthvað - sjónvarpsstjóri ákvað að halda laginu inni, væntanlega útafþví að það var skemmtilega öðruvísi og gerði júró að talsvert skemmtilegra efni en það hefði verið án þess. Hann hefur vald til þess. Sjónvarpið á þessa keppni og þeir setja reglurnar - og geta væntanlega bara breytt þeim eins og þeim sýnist. Þetta er nokkuð sem Kristján hefði átt að átta sig á í stað þess að gera sig að fíbli. Voðalega vont PR hjá honum. Hann hefur hingað til átt afskaplega greiða leið í útvarpið, verið að skjóta limrum og ýmsum skeytum - og verið trítaður svolítið eins og eitthvað selebritý, svo maður sletti nú smá. Spurning hvað hann á opna leið inná RÚV núna - hef á tilfinningunni að Páll Magnússon taki ekkert létt á svona uppákomum og ráði því sem hann vill ráða. Mér skilst að þegar höfundar rottuðu sig saman og hótuðu að ganga úr keppninni yrði Þorvaldi og Silvíu ekki vísað úr keppni þá hafi hann sagð þeim að gjöra svo vel, en þetta yrði þá síðasta júróforkeppnin meðan hann væri útvarpsstjóri. Þokkalega töff á móti. Jaðrar við obbeldi.

Einn svolítið skemmtilegur vinkill á þessu öllu; sá sem samkv. heimildum var harðastur ásamt Kristjáni í því að hóta að draga sig úr keppnninni ef lagi Þorvaldar Bjarna yrði ekki vísað úr keppninni heitir Hallgrímur Óskarsson. Býsna ótrúlegt. Síðast þegar ég vissi ráku þeir saman, ásamt honum Vigni Snæ í Írafár, Reykjavik Music Productions og Tónvinnsluskóla Þorvaldar Bjarna. Væntanlega svolítið þvinguð stemming á skrifstofunni þegar júró er til umræðu.

En að lokum - ég hef nú ekki verið sérlega ginkeyptur fyrir Silvíu Nótt æðinu, sá minnst af þáttunum og bara nennti ekki að fylgjast almennilega með því litla sem ég sá. Leist ekkert á það þegar ég heyrði að þessi fígúra yrði í keppninni. En hún var bara ógissla flott skilurðu. Sexy show og afbragðsflutningur. Hún kann alveg að syngja hún Ágústa. Hinir bara áttu ekki séns. Ekki minnsta.

6 Comments:

Blogger sapuopera said...

Ég er alls ekki hrifin af fígúrunni Silvíu Nótt þótt laumist stöku sinnum eitthvað fyndið út úr henni. Mér fannst þessi performans í gær hinsvegar braðskemmtilegur. Hreyfingarnar flottar og þótt hafi verið betri söngkonur í keppninni getur Ágústa alveg sungið.

Ég efast reyndar um að íbúar Austur Evrópu fatti þannan lókal djók okkar en við höfum oft sent verri lög í keppnina. Mér fannst reyndar lagið sem Regína söng best. Það er hefð fyrir því að lagið sem fellur best í kramið hjá mér lendir í öðru sæti. Ég hefði viljað að hársnyrtir hennar yrði sendur á smekkvísinámskeið.

11:04 AM  
Anonymous Sverrir said...

Algjörlega ósammála eins og stundum áður. Aldrei verið mikið fyrir að horfa á svona keppnir, en sá þessa.
Sjónvarpi fær eitt RISA stórt hrós fyrir þessa forkeppni. Alla staði glæsileg keppni og til fyrirmyndar. Hinsvegar mun brandarinn með SN alls ekki fattast neinstaðar annarstaðar. Það vill svo til að svona múndering og framkoma telst víða eðlileg í þeim löndum sem taka þátt. Að tala um Björn Jörund sem góðan eða yfirhöfuð einhvern stjórnanda bendir til mikils reyks eða ofurölvunar. Ég veit svo sem að Jón formaður bloggar ekki fullur en þetta bendir til undantekningar. ;-) Hver segir svo að "vond" lög eigi ekki séns að vinna.... hvað ætli maður geti talið upp mörg VOND vinsæl lög???? Hæ hó jibbíjei......

8:18 PM  
Blogger Jon Kjartan said...

Sápuópera. Ég deili með þér þessum efasemdum. Og jú, hársnyrtirinn hennan Regínu þarf að fara í einhverja endurhæfingu.

Og Sverrir, þetta var vissulega glæsileg keppni og flott umbúð. En ef umbúðin er það dýr að það kostar að þeir hefi ekki efni á keppni að ári þá var það ekki þess virði. Frekar minni umbúðir.
Og jú, SN þýðist trúlega ekki vel og ég er alls ekki viss um að það sé góð hugmynd að senda þetta sjó út, en þetta var bara langskemmtilegast þetta kvöldið - svona burtséð frá framhaldinu. Þær þrjár, Dísella, Guðrún Árný og Regína voru langmest "júró" og væru mest við hæfi á keppninni (og hvor annari frábærari söngkonur) - en SN var bara flottust.
Björn Jörundur... hefur vissulega átt misgóða leiki. EN mér fannst þessi þáttur nokkuð skemmtilegur. MIKLU betri en fokdýra samkeppnin hjá ríkinu.
Og þegar almenningur fær að ráða þá má reyndar telja það næsta víst að það verður vont lag sem vinnur - þetta Til hamingju Ísland er nú ekki mjög dýrt lag. Grípandi viðlag. Það sem ég var að tala um var dómnefndin sem valdi lögin sem tóku þátt í forkeppninni - eitthvað fannst mér bogið við þeirra val, áttu jú að vera fagmenn þar.
En þú ert samt frábær.

10:40 PM  
Anonymous sverrir said...

Og þú ert nú ekki sem verstur sjálfur.
En af því að þetta tókst svona vel og af því allir voru svona hrifnir þá reyndar hét Páll Magnússon því í dag að þetta yrði í þessum dúr næstu árin!! Það er rétt að RÚV þátturinn var vondur þáttur með Steinolíu en það er ENGINN þáttur svo vondur að BJ komist upp í meðallag í samanburði... Sjóið var skemmtilegt í undankeppninni, en það er því miður svo með brandara að það þarf sérstakt lag til að þeir séu fyndnir tvisvar sagðir eins. Og það lukkaðist ekki vel fannst mér m SN Hrein múgsefjun. Fólk var bara búið að ákveða að þetta væri skemmtilegt. Sorry það var ekki svo, hafi maður séð undankeppnina. Djö er leiðinlegt að rífast við þig og þurfa alltaf að fara í dyslexíupróf í restina!!! Nenni ekki meir....

11:41 PM  
Blogger Jon Kjartan said...

Ég biðst forláts, en dyslexíuprófið er eina leiðin til að halda klámauglýsingum og tilboðum um að gera typpið á mér stærra (eins og þess þurfi) í burtu.

11:50 PM  
Anonymous Pétur Örn said...

Ágústa er frábær, Björn er flottur og skemmtilegur, Buff er fullkomin og Þú jón ert betri en allt ofantalið.

6:22 PM  

Sendu inn athugasemd

<< Home