©Jón Kjartan Ingólfsson. Afritun náðsamlega afþökkuð.

05 febrúar 2006

Leikskólavísindi

Það var í fréttum áðan að hópi breskra vísindamanna hafi tekist, eftri margra ára rannsóknir, að sýna fram á tengls milli hlýnunar jarðar og bráðnunar íss á suðuskautslandinu. Ég endurtek - hópur breskra vísindamanna, margra ára rannsóknir.

Ég hélt að svona nokkuð væri hægt að komast að niðurstöðu um eftir sirka korters rannsóknir á leikskólastigi... ís bráðnar í hita!

3 Comments:

Anonymous Kata said...

Hehe já en sko.. kannski voru þessir vísindamenn aldrei í leikskóla..

9:12 AM  
Blogger sapuopera said...

Ég man eftir rannsókn sem leiddi í ljós að fólk leitar oftar til læknis vegna langvarandi kvefpestar í börnum á vetrum en sumrum.

Vinur minn varð líka alveg hlessa þegar hann var í Kennaraháskólanum og var látinn lesa sig í gegnum rannsókn sem sýndi að stúlkur ná kynþroskast á undan drengjum og eru almennt fyrirferðarminni í kennslustundum.

Mér finnst alltaf voða gott til þess að vita að skattpeningarnir mínir renni að hluta til vísindarannsókna.

12:55 PM  
Anonymous Jón Kjartan said...

Jú - það er alltaf svo heillandi þegar menn eyða óratíma og helling af pening í að sanna hið augljósa.

1:26 PM  

Sendu inn athugasemd

<< Home